Hágæða framleiðsla
Arkitekta- og verkfræðiteikningar
Prentum arkitekta- og verkfræðiteikningar CAD og aðrar teikningar í lit og svarthvítu.
Skönnum, ljósritum og plöstum teikningar.
Best er að senda teikningar á PDF formi á netfangið pixel@pixel.is og tilgreina magn,
stærð og hvort prentun eigi að vera í svarthvítu eða lit.
Við leggjum mikla áherslu á vandaðan pappír og hágæða prentun á öllum okkar vörum.
Prentráðgjafar okkar eru fúsir að leiðbeina, gefa góð ráð og gera verðtilboð.
Pappírsþykkt
Pappír í teikningum er venjulega 70-90 gr.
Algengar stærðir
A4 (210x297 mm.) | A3 (297x420 mm.) | A2 (420x594 mm.) | A1 (594x840 mm.) | A0 (841x1189 mm.)
Endurprentun
Auðvelt er að endurprenta eldri verk þar sem við kappkostum að geyma öll verkefni á stafrænu formi.
Aðrir valmöguleikar
Plöstun | Brot | Límt á foamplötu